blog... the modern person's cry for attention

sunnudagur, mars 11, 2007

Kæru vinir á Íslandi! Þrátt fyrir mín fögru fyrirheit um að koma til Íslands í sumar með unnustann, neyðist ég vegna praktískra kringumstæðna til að aflýsa því. Nú hef ég keypt mér miða til Kaliforníu og hyggst dvelja þar allan júlímánuð í sólinni með kærastanum. Þetta verður mitt fyrsta frí í meira en tvær vikur seinustu 12 -13 árin og er ég mjög kát yfir þessu.

1 Comments:

  • Þú ert náttla algjör kúkalabbi að koma ekki til Íslands, en þar sem að það er svo ólíkt þér að taka þér nokkuð frí yfirleitt þá samgleðst ég þér innilega með þessa ákvörðun þína. Megir þú verða sólbökuð og valhoppandi af gleði í Ameríkunni :)

    By Blogger Unknown, at 2:28 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home