blog... the modern person's cry for attention

þriðjudagur, janúar 18, 2005

Nýja tölvan mín er æði. Æðistæði. Mér finnst hún geta hreinlega allt...Og svo er líka svo gaman að eiga sína eigin litlu fartölvu...

Ég er súkkulaðiÓÐ. Ég held að ég sé búin að borða vel á hálft kíló undanfarin sólarhring... þetta hlýtur að vera undanfari hinnar mánaðarlegu skemmtidagskrár. Og já, svo festi ég kaup á nokkrum nauðsynlegum hlutum í gær. Rauðri kápu, svörtum gervileðursstígvélum (svona krumpuðu dæmi sem ég hélt aldrei að ég myndi kaupa) og ljósum rússkinnsstígvélum (ég gefst ekki upp). Nú finnst mér eiginlega kaupþörf og eignagræðgi mín vera mettuð í bili. Enda er ég búin að fá svo mikið af fínum afmælisgjöfum og eignast mikið af nýjum fötum undanfarið að ég held ég þurfi smá pásu til að venja mig við þetta nýja ástand á fataskápnum mínum. Alla mína ævi (nema kannski þegar ég var ellefu ára og það var varla hægt að loka skápunum heima fyrir ljótu og furðulegu drasli) hef ég nefnilega átt frekar lítið af fötum og alltaf bara átt nokkrar "flottar fyrir djammið" flíkur, en nú á ég eiginlega allt of mikið, finnst mér. Þessi tilfinning líður þó eflaust fljótlega hjá.

2 Comments:



  • Ég var alltaf að bíða eftir nánari útlistun á partýinu hjá Damon Albarn...átti von á einhverju meiriháttar slúðri í kringum það?

    By Blogger Sif, at 12:10 e.h.  

  • Já maður, varla hefurðu verið látin skrifa undir þagnareið í þessu partýi! Koddu meðða!

    By Blogger Tinnuli, at 6:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home