blog... the modern person's cry for attention

föstudagur, júlí 22, 2005

Veit ekki alveg af hverju ég sit hér á náttfötum með gleraugu og fitugt hár þegar ég ætti að vera í sturtu að maka á mig dýrindis sápum og ilmkvoðum? Það rann upp fyrir mér í dag að ég hef ekki farið í sturtu síðan á þriðjudaginn (já, og ég segi hiklaust frá því, þetta þvottasull er ofmetið) og mér finnst ég vera nett klístruð. Slíkt dugir ei þegar haldið skal í Tívolí í kveld að hlýða á skærustu R´nB stjörnur Danaveldis hefja upp raustir sínar og svo í eitthvað furðulegt partí á Vesterbro. Hitti nefnilega Alexander og Jakob (sem munu ALDREI geta hætt endanlega saman) á götuhorni í gær þar sem þeir voru "rétt í því að kveðjast", humm, og þeir buðu í þetta partí. Það verður svo að koma í ljós hversu skemmtilegt það verður.

2 Comments:

  • Tjah her hef eg eilitid glitrandi og vellyktandi i poka handa ther:) Kem heim a thridjudaginn, hlakka til ad sja thig!

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:51 e.h.  

  • Það hljómar vel - ég luma einnig á smáræði handa þér ;-). Er það á miðvikudaginn sem við áttum að koma í heimsókn? Hringdu endilega í mig þegar þú kemur heim, hlakka mikið til að hitta þig!!

    By Blogger Jon Kyst, at 5:55 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home