blog... the modern person's cry for attention

sunnudagur, júní 26, 2005

Danir taka upp hvalveiðar að nýju

Mesta mildi þykir að ekki fór verr, þegar tveir svitablautir og rauðflekkóttir hvalir urðu fyrir endurteknum árásum grameðla á skemmtistaðnum Vega aðfaranótt sunnudags. Hart var sótt að hvölunum úr öllum áttum, og sáu hvalirnir sér ekki annað fært en að leggja á flótta með úfið hár, maskara úti á kinn og tilheyrandi bægslagangi. Hvalirnir sáust seinast á hlaupum í átt að næsta pítsustað, og ekki er vitað annað en að þeir hafi komist óskaddaðir til síns heima. Talið er að grameðlurnar hafi verið af pakistönsku, tyrknesku og indversku bergi brotnar.

2 Comments:

  • Já hvalir hafa löngum þótt vinaleg dýr, finnst mér þó oft, og sér í lagi þetta kvöld, sem þeir væru ofmetnir að öllu leiti því eigi var útlitið gott:)

    By Anonymous Nafnlaus, at 1:48 e.h.  

  • BTW! Hvalir skulu mættir í PicNic Miðvikudaginn 29.júní næstkomandi kl.18:00 með drykk (og æti ef þeir vilja). PC er haldið við vatnið í Christianshavn.

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:20 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home