blog... the modern person's cry for attention

þriðjudagur, september 28, 2004

Í morgun fann ég hina fljúgandi meinvætt örenda í gluggakistunni. Það breytir þó eigi þeirri staðreynd að umgjörð hægra auga míns er bólgin og rauð og á ég í engu að líkjast þeirri snotru skrifstofudömu sem ég hef verið undanfarnar þrjár vikur. Þetta líður þó vonandi fljótt hjá.

Í dag ætla ég að prófa að fara í Pilates. Kannski hjálpar það gegn stirðleika mínum og vöðvabólgum. Er að verða desperat.


1 Comments:

  • hæ! ég sé að hermt hefur verið eftir litlu systur! ekki hélt ég að sá dagur myndi koma!! jæja, til hamingju samt með breytinguna... og já ég er flutt til afríku..og ameríku og asíu og ástralíu...hahhahah! ég er allstaðar!!! MÚHAHAHAHHA!!!!

    By Blogger Halla, at 6:31 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home