blog... the modern person's cry for attention

þriðjudagur, apríl 05, 2005

Um daginn var ég að hneykslast á grein í B.T. , sem hélt því fram að karla dreymi um skotvopn, eltingarleiki og kynlíf (á nóttunni, altso), en konur dreymi um mat, innkaup og búðaráp og vinkonur sínar. Aldeilis ekki, hélt ég og rifjaði upp ýmsar æsilegar og oft miður siðsamlegar draumfarir mínar. Neinei. Hvað haldiði að mig hafi dreymt næstu nótt? Að ég væri í Hagkaup að kaupa kjúklinga í súpu, af því að ég hafði boðið Sif í mat! Hí á mig.


Ferðin til Spánar ER bókuð, og við Mr. Serrano hér með orðnir fullgildir íssalar á Hróarskeldu 2005.

2 Comments:

  • Mikið er ég fegin að þig skuli dreyma mig!!

    Og til lukku með spán og ísinn :)

    By Anonymous Nafnlaus, at 6:43 e.h.  

  • Í alvöru! Bróðir minn verður á Hróarskeldu ... :) hafðu auga með honum!!! Á morgun hefst sambúð mín...

    By Blogger Tinnuli, at 4:46 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home