blog... the modern person's cry for attention

fimmtudagur, júní 02, 2005

Margt er sér til gamans gert, en því miður virðist stór hópur fólks hreinlega vera að morkna úr leiðindum og tilgangslausu nöldri. Takið sérstaklega eftir innlegginu sem þessi "þarfa" umræða hefst á.

Jæja, svona til að bæta á óþarfa mal og tuð, get ég sagt ykkur það að það er ÖMURLEGT veður í Kaupmannahöfn, það er bóla á hökunni á mér, Eilis er að koma í kvöld frá London og ég er undirlögð af leti. Og mér dettur ekki neitt skemmtilegt í hug. Jú, ný sería af Bráðavaktinni byrjar í kvöld, jei!

3 Comments:

  • Bíddu.. hvað varð um þennan kærasta þinn?? Æi já, hann hlýtur að vera farinn til Þpánar.

    By Blogger Tinnuli, at 5:51 e.h.  

  • Hann er ekki farinn neitt, er hér sólbrúnn og kyssilegur að elda lasanja. Og ekki færi hann að fara til Spánar án mín!!

    By Blogger Jon Kyst, at 9:56 e.h.  

  • Nú, hvað ertu þá að láta þér leiðast!

    By Blogger Tinnuli, at 2:03 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home