blog... the modern person's cry for attention

sunnudagur, september 04, 2005

Matarlyst mín hefur farið minnkandi undanfarið og sérstaklega á ég orðið erfitt með að borða feitan mat. Þetta kom sérstaklega í ljós á föstudagsnóttina þegar ég ældi eftir MacDonaldsmáltíð (ef máltíð skyldi kalla). Á MacDonalds hittum við Anna Einar Leif og tvo aðra stráka og annar þeirra var mjög kunnuglegur, Gunnar hét kauði og þekkti mig víst vel. Ekki kom ég honum alveg fyrir mig og hann var víst mjög móðgaður yfir því. Ef einhver getur sagt mér hver þetta er og hvaðan við þekkjumst, er það vel þegið.

1 Comments:

  • Engar áhyggjur, Einar Leif man ekki eftir því að hafa hitt okkur á MC, það kom honum alveg í opna skjöldu þegar ég rifjaði þetta upp fyrir kjallinum. Þess vegna held ég að þessi Gunnar hafi líka með öllu gleymt okkur og hve móðgaður hann ku hafa verið:=)

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:12 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home