blog... the modern person's cry for attention

laugardagur, ágúst 27, 2005

Hérmeð lýsi ég eftir fróðum einstaklingi sem getur kennt mér að setja myndir inn á bloggið mitt (og helst vel efnuðum, svo hann/hún geti splæst á mig digital myndavél). Þetta gengur ekki lengur, og nei, ég vil ekki sjá þetta Hello kjaftæði sem lagði fínu tölvuna mína undir sig og dúkkaði upp í tide og utide.

1. Lá í rúminu þar til klukkan var farin að ganga tvö.

2. Í vikunni hafa fleiri spurt hverjum ég sé gift og hvort við eigum börn en í hvaða bekk ég sé í. Framfaramerki mikið, kannski eru farnar að koma hrukkur? Svo er ég búin að heyra nokkrum sinnum að ég sé með slavneskt útlit og líkist Rússa fremur en Íslendingi. Ég er nú ekki svo viss sjálf, en á víst bara að tage det som en kompliment, eins og nágranni minn Micha Stern sagði í gær í víetnamska hommapartíinu (hann var þar af óvissum orsökum).

1 Comments:

  • Ekki málið annsi minn hún nafna þín getur sko alveg sýnt þér handtökin við myndinnsetningar já sei sei. Kem í kvöld....see ya:=)

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:09 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home