Aaaaaaaaahhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhh!
Dreif mig loksins í nudd, löngu kominn tími til enda líkami minn oftar en ekki eins og grjót og skemmtilegur að hafast við í eftir því. Það lá við að ég sofnaði meðan á klíperíinu og nuddinu stóð, og vaknaði við að ég var alveg að fara að slefa á gólfið...En djöfull var þetta gott. Mér líður eins og ég sé hafragrautur í plastpoka. Gera þetta aftur fljótlega.
1 Comments:
Ég þarf að gera slíkt hið saman. Ég er eins og steypuklumpur viðkomu, að innan sem utan. Þetta gerir bölvað harkið í ellibransanum. Og afleitt rúm.
By Tinnuli, at 9:50 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home