blog... the modern person's cry for attention

miðvikudagur, mars 15, 2006

Þessi Lakerol Giants auglýsing er mesta þvaður sem ég hef nokkurn tímann séð (ég elska að taka svo sterkt til orða, orðið nokkuð margt sem toppar mína lista). Hver færi nokkurn tímann að segja hluti á borð við: "Mmmm, this taste should last all night!" Hvern langar að bragðast eins og lakkrís í marga klukkutíma og persónulega myndi mig ekki langa að kyssa munn með Lakerolbragði. En hvað um það.


Þegar ég fór út í Amagersentrið í gær undir því yfirskini að ætla að kaupa kuskrúllu, endaði ég auðvitað á því að kaupa föt, í fyrsta sinn í heila eilífð. Ég var heltekin ótrúlegri léttistilfinningu þegar ég gekk þaðan út með dulitla poka í hendi mér. Mikið lifandis ósköp er gott að eignast nokkra nýja boli.

1 Comments:

  • ég fékk einmitt (loksins!) djammbol í afmælisgjöf!!! ég fékk reyndar annað sem hafði verið lengi á óskalistanum en engum hafði dottið í hug að gleðja mig með..FRIENDS:D:D:D ég fékk alla tíundu seríu.. en bolurinn er algjört æði og ég hef hugsað mér að töfra unga menn í tugatali upp úr skónum næsta laugardag! ;) hef meira að segja skipt vöktum bara svo ég geti djammað!!!!

    By Blogger Halla, at 10:23 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home