blog... the modern person's cry for attention

miðvikudagur, október 11, 2006

Fólk sem reykir á enga vorkunn skilið. Reykingar eru viðbjóðslega heilsuskemmandi og stórhættulegar, og þar sem að reykingar eru ekki meðfæddar eða arfgengar, heldur persónulegt val um að eyðileggja eigið heilbrigði, getur engan veginn talist réttlátt að óþverrinn skuli yfir aðra ganga. Til allrar hamingju hætti ég sjálf alfarið að reykja að mig minnir um tvítugt og núna hata ég sígarettur og vindla og eiginlega flest allt reyktóbak. Nú er svo fyrir mér komið að ég á mjög erfitt við að þola við í herbergi þar sem verið er að reykja, og til dæmis langar mig minna og minna að fara út á bari eða skemmtistaði hér í landi af því að nærri alls staðar er reykt. Sömuleiðis orka ég varla að fara með sumum vinum mínum á kaffihús af því að þau reykja svo mikið.
Danir eru átakanlega á eftir í þessum málum, í dag var ég að vinna á elliheimili þar sem má reykja hvar sem er og hvenær sem er, og upp úr hádegi var ég hreinlega að kafna í mekkinum. Danir eru líka sérstaklega skæðir með það að það séu sko mannréttindi að reykja hvar sem mann lystir, og þá skiptir engu máli hvort að reykleysingjar og sakleysingjar séu til staðar, hvort annað fólk sé að borða og þar fram eftir götunum.

Jæja, rétt í þessu datt hillutötur niður af veggnum mínum, hún hefur svosem alltaf verið illa fest og ég hef átt von á þessu lengi. Það var eins gott að ég lá ekki í rúminu því þá hefði ég fengið styttur, bækur, blómapotta og hillu ofan á mig. Andskotans. Og ég sem er að verða uppiskroppa með hillupláss fyrir. Laga þetta á eftir.

Svo að haldið sé áfram, þá hefur reykingafólkið á þeim vinnustöðum sem ég hef verið á hér í landi, til dæmis alltaf brjálast þegar ég hef ítrekað minnt á að bannað sé að reykja í matstofunni eða minnt á þær reglur sem settar hafa verið. Kommon, maður velur sjálfur að reykja og það er svosem hverrar manneskju réttur. En það hefur enginn rétt til að eitra andrúmsloftið fyrir öðrum með stórhættulegum reyk og þá er bara ekki um annað að ræða en að drulla sér út þar sem maður er ekki fyrir öðrum með sitt andstyggðarreykingadútl. Það er margsannað að "passívar" reykingar drepa!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

2 Comments:

  • Halleluja! næstum eins og að vera komin á samkomu hjá Gunnari í krossinum það vantaði bara að reykingar væru komnar frá satani og þannig tal...
    ...má ég heyra AAAAMEEEEN!!!

    Anna mín ekki fara yfir strikið :)

    By Blogger Skvísin, at 7:10 e.h.  

  • Reykingar eru frá djöflinum, múhahahahha...

    By Blogger Jon Kyst, at 11:42 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home