blog... the modern person's cry for attention

mánudagur, apríl 17, 2006

Ég snéri heim frá hinu víðfeðma landi í eystri eftir tveggja vikna þvæling með halarófu af ungu fólki á eftir mér um borg og bý. Gekk þetta nokkuð betur en seinast, ekkert yfirgengilegt fyllerí (nema í Novgorod þegar yfirmaður minn gerði sitt besta til að valda áfengiseitrun hjá nemendum sínum og aðstoðarkonu og tókst nokkuð vel upp), engir skandalar (a.m.k. ekki mér viðkomandi) og engir verulegir skaðar á sál, líkama eður veski. Þeir koma kannski í ljós seinna en í augnablikinu finnst mér þetta allt líta sæmilega út. Páskasólin skín úti, Eva Cassidy syngur værri röddu um stúlkuna a fjallinu og ég ætla að fara að þvo þvott.

1 Comments:

  • hahahahhaha!!! mig dreymdi að þú bauðst mér í partí um helgina og ég var að kaupa mér flugmiða til köben bara til að koma í partí!! :D:D -svona bara til að minna þig á það, þá er ÉG að fara að dimmitera eftir 8 daga!

    By Blogger Halla, at 8:51 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home