blog... the modern person's cry for attention

miðvikudagur, febrúar 02, 2005

Aldrei að segja aldrei, hafa margir sagt i tidens løb. Oft, oft og mörgum sinnum hef ég lýst því yfir að ég ætli aldrei meir að vinna í ellibransanum, en það er merkilegt hvað ég dett auðveldlega inn í þetta þegar í harðbakkann slær. En allt er hey í harðindum og á peningum þarf maður að halda, hvað sem öðru líður.
Mér sýnist a.m.k. á öllu að dæma að ég sé á hraðleið inn í skeiningar og bleyjuskipti, þrátt fyrir glæstan feril minn sem túlkur, þýðandi og koordinator of cultural events í Arkhangelsk.

Steffi og Christina koma á morgun, júbbíjei!!!

2 Comments:

  • Ó og æ!

    By Blogger Tinnuli, at 3:27 e.h.  

  • jæja, maður er bara veikur aumingi:( gott samt að þú ert komin með vinnu...
    bið að heilsa steffi ef hún man eftir mér...

    By Blogger Halla, at 6:04 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home