blog... the modern person's cry for attention

föstudagur, nóvember 11, 2005

Jæja krakkar. Það er bara farið að vera dimmt klukkan fimm á daginn, og mér finnst það bara notalegt. Ég er búin að vera ein heima í allan dag eftir að Alexander fór í morgun. Í gærnótt neyddi ég hann til að gista hjá mér með hótunum um samlokur sem ég var ákveðin í að fá mér þegar heim kom í gær eftir International barinn. Aldrei komst ég þó svo langt heldur fleygði mér á beddann hið snarasta og sofnaði undir eins og greyið Alexander mátti sjálfur hátta sig eða fá sér að borða eða hvað sem hann gerði eftir að ég var sofnuð. Aumingja Alexander - það er nærri fastur liður að ég skikki hann til að gista hjá mér eftir djammið svo að mér leiðist ekki þegar ég vakna.

Mmmm, Rittersport.

1 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home