blog... the modern person's cry for attention

þriðjudagur, janúar 17, 2006

Til tannlæknis skal farið ekki seinna en í febrúar og alls ekki seinna en í mars. ég komst að því í dag að skoðun og hreinsun kostar ekki meira en 276 krónur. Ég átti von á miklu meira. Svo á auðvitað eftir að koma í ljós hvað þarf að laga þarna í skoltinum á mér, alveg ljóst að það þarf að gera eitthvað við dökku tennurnar en vonandi þarf ekki að fara að skera úr mér endajaxlana. Það er ég hræddari við en sjálfan andskotann. Jæja ég ætla að DRULLA mér til að strauja fötin sem eru búin að liggja hér í viku. Alexander er að koma í bjúgu og Topmodel á eftir.

1 Comments:

  • Þú getur nú farið að prjóna á bastarðinn væntanlega! Ég var að kaupa mér norska baby ull og er byrjuð á teppi með afar flóknu munstri..

    By Blogger Tinnuli, at 11:21 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home